Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Drulludelar ! Er ekki eitthvað annað almennigsklósett sem þið getið notað ?

Ég vísa í myndbrot inná bloggsíðu Láru Hönnu:  "Stórustu pissudúkkur í heimi" 

Lára Hanna

Ég fór að hugleiða eitthvað svipað á dögunum, undir kvöld, þegar yfir sveif einkaþota og þegar ég horfði á eftir henni, þar sem hún hvarf í átt að Reykjavíkurflugvelli, fann ég næstum spillingarfnykinn afturúr henni, dreifast yfir borgina.

Að hafa tannlaust fjármálaeftirlit sem er í engu samræmi við stærð bankakerfisins, er það ekki að bjóða hættunni heim ?

Að leggja niður Þjóðhagsstofnun og enda með greiningardeildir bankanna sem aðal umsjónaraðilann, er það ekki upplagt svæði, vegna pólitískrar og fjármálalegrar vanþróunar og afturfarar, til að setja upp peningaþvottavél á ?

Þetta mál þarf að skoðast strax !

og þó fjúki hausar af einhverjum frænda eða frænku einhvers í kjölfarið, þá verður bara að hafa það, því farið hefur fé betra !

Það er spurning hvort við höfum pening til að reisa nógu stórt fangelsi, að það rúmi alla þá sem mögulega hafa gerst sekir, með fullri vitund eða ekki.

Væri kannski ódýrara að senda þá bara úr landi vegabréfslausa í nokkrum þotum, t.d. til London.

Þetta verður að skoðast í alvöru, því margt ungt fólk er að flytjast búferlum og frekar vil ég hafa það áfram hér, en þessa drulludela, sem réttast væri að misstu sem fyrst ríkisfang sitt. 


Vantrauststillaga til umræðu ! Þarf eitthvað ræða það frekar?

Úr Fréttablaðinu 21.Nóvember á því herrans ári 2008:

"Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi hafa ræðst við um að bera fram sameiginlega vantrauststillögu á ríkisstjórnina."

"En ríkisstjórnin á auðvitað ekki annað skilið en að slík tillaga sé borin fram" Heyr heyr

"Steingrímur segir að viðkvæm staða sem uppi var vegna samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafi haldið aftur af mönnum en eftir gærdaginn þurfi í raun ekkert að koma í veg fyrir að tillagan verði borin upp"

 

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvaða Alþingismenn stjórnarflokkanna munu samþykkja þessa tillögu !

Sýnið nú KRAFT  DUG  og ÞOR.  Þið Alþingismenn sem eruð menn með mönnum !

Möguleiki er að setja saman starfhæfa Ríkisstjórn með ykkar stuðningi !


Mesta fíflið í Íslenska flotanum !

Þetta youtubebrot sem ég fann, ber yfirskriftina:

"Mesta fíflið í Íslenska flotanum" ójé (þarna eru einhverjir sjómenn að sprella)

En ég sé Þarna fyrir mér Forsætisráðherra synda innanum dauða þorska í lauginni !

og það virðist vera mikill skítur á botninum !  Botnfall ?

Hvar er sundlaugarvörðurinn ?  Á ekki að fara að koma manninum úr lauginni, svo við hin (skríllinn) getum komist á milli bakka ? 

Án þess að vaða í botnfrosinni viðrekstrarstjórnarleðju og tómum skít ?

Maður kemst varla útúr húsi fyrir kjánahrolli !

Hvar er færibandið sem færir þessa þorska niðurávið ?

Þetta er vélræði, ekki lýðræði !

Þetta eru nú meiru tuskudúkkurnar.

Maður bíður bara eftir Dario Fo á sviðið, svo þetta virki nú einsog þetta sé bara í Þjóðleikhúsinu.

Að þetta sé farsi spunninn útúr raunveruleika, en ekki raunveruleiki spunninn útúr farsa !


Ríkisstjórnin klúðrar hundruð milljarða af slóðaskap.

"Til er undanþáguákvæði í ESB sem hefðu getað minnkað ábyrgð Íslendinga á innistæðutryggingum á innistæðum erlendis. 

Samþykktin var sett í nefnd og gleymdist síðan þar bara.

Forsætisráðherra segir já "þarna var einhver undanþága sem menn nýttu sér ekki" eins og þetta sé ekkert mál.

Eftir allt það klúður sem undan er gengið og nú þegar búið er að leggja botnlausar byrðar á almenning telur forsætisráðherra að hann sé réttur maður til þess að leiða þjóðina í gegn um það sem fram undan er.

Hvað er hægt að kalla þetta: siðblindu, veruleikafyrringu eða hvað?"

 

Tekið orðrétt af bloggi Jakobínu Ingunnar Ólafsdóttur og hef ég engu við þetta að bæta.

En hefur Forsætisráðherra einhverju við þetta að bæta, aðrir ráðherrar, stjórnarflokkarnir, nefndarfulltrúar eða aðrir sem þessu tengjast.

Er hægt að bæta bölið með því að benda á eitthvað verra !

 

 


Fílabeinsturn dettur á hliðina og allir hrópa húrra. Lifi Lýðveldið !

Ég vona að hér veljist sem fyrst til forystu fólk, sem sér samhengi í hlutunum.  Því þótt nútímaveruleiki sé sundurlaus og oft absúrd, bætir ekki úr, ef þeir sem valið hafa sjálfa sig og vini sína til embætta eru ennþá meira sundurlausir og absúrd, en sá veruleiki sem þeir eiga að hafa stjórn á.

Við erum ennþá að bíða eftir að einhver falli úr hinum háu Fílabeinsturnum !

Vitum til !

Á morgun fellur einn !

Ef ekki fleiri til !

og kannski turninn sjálfur og allt hans lið !


Ofsatrúarhópurinn GULLKÁLFURINN og annað

"Menn sem ekki geta borgað, eru uppá gamla mátann, taldir óreiðumenn, það lærði ég hjá Ömmu minni" svo mælti peningaskáld þjóðarinnar, sá með gulltunguna, sem jafnframt er forstöðumaður ofsatrúarhópsins "Gullkálfurinn"

Ég spyr:  Verða þá allir Íslendingar sem ekki geta borgað núna og á næstunni taldir óreiðumenn ?  Á ensku: "People of disorder" ?

Grunnhyggni er af sumum talin æðsta dyggðin og þeir sem það telja, reisa sér risastór hús á glópagullssandi og telja það meistaraverk og monta sig af og þeirra uppáhaldsfugl er Fálkinn.

En aðrir eru djúphyggnir og telja betra að reisa hús sín á mannvitsbjargi, því þar fari saman viska, fagurt hjarta og þjóðhollusta.......en ekki óhollusta og þeirra fugl er Örninn, því hann flýgur hærra en Fálkinn og sér því hvað hann er að gera.

Hugsar hver um sjálfann sig og hver á þá að hugsa um þig !

Ég fann þetta Youtubebrot, þegar ég sló inn leitarorðinu "Tierra Del Fugo, sem þýðir Eldland á okkar tungumáli og er svæðið á syðsta odda Suður-Ameríku, því ég hef gaman af Smáþjóðum og menningu þeirra og þar bjuggu þegar Spánverjar komu þangað, stórvaxinn Indíanaættbálkur, sem var fljótlega útrýmt, sem kallaðir voru Eldlendingar, kannski blogga ég um þá seinna, en þá kom þetta myndbrot upp, sem er úr kvikmynd eftir Argentíska leikstjórann Armando Bo, sem ég hafði aldrei áður heyrt nefndann og var víst sá fyrsti sem birti nektarsenu í Argentískri kvikmynd.  Sú sem leikur kvenhlutverkið er náfrænka hans, Isabel Sarli.  Þetta minnir mig óneitanlega á "Svalbarða" þættina. 

Mér finnst að Utanríkisstefna okkar í nánustu framtíð ætti að byggjast á tengslum okkar við smáþjóðir og því smærri, því betra Grin Wizard  Grin  Sumar þjóðir sem hafa sitt eigið tungumál, telja kannski bara 40 manns og af þeim tala kannski 3 tungumálið eða bara 1.  Ein mesta auðlind mannsins, hin margvíslegu tungumál ýmissa hópa sem byggja þessa jörð, er að rýrna, hvert á fætur öðru eru þau að hverfa á braut og koma aldrei aftur.

Ef við göngum í EB ættum við að leggja áherslu á þessi mál.

Öllum þeim milljónum sem fóru í Öryggisráðglysið, sem var vonlaust frá upphafi, eftir að áður hafa sett nafn okkar á lista þeirra þjóða sem styddu Íraksstríðið, hefði verið betur varið í að styðja baráttu þeirra smáþjóða sem berjast fyrir lífi sínu, menningu og móðurmáli.  Það hefði skapað okkur þann heiður sem stolt okkar á að byggjast á.


Dagsljós !

Mér sýnist að mjög margir hér í opinberu lífi séu búnir að grafa sér sína eigin gröf, séu dottnir ofaní hana, en vilji helst taka aðra með sér í þá myrkrakompu, en ekki hef ég í dag nennt að grafa mig oní það með þeim, með því að lesa það oní kjölinn sem þeir bulla.  Það er fyrir neðan mína virðingu, að lesa það.  Þetta er orðið of barnalegt !

En það var gott hjá Helga Seljan að fara í Fjármálaeftirlitið, mér fannst það ljósi punktur dagsins.  

Youtubebrotið að ofan er tileinkað henni Engilstínu, sem ég las blogg hjá eftir hádegi og við gerðumst bloggvinir.  Hún er Langamma og býr í Danmörku með hundinum sínum.  Mér fannst mjög hrífandi að sjá að Langömmur geta ennþá rifið kjaft.  Hún svaf lítið síðustu nótt fyrir áhyggjum af peningamálum og ég hef fyllstu samúð með henni, en ég vona svo sannarlega að hún sofi betur í nótt.


Stirfni, Græðgi og Heimska Allt er þegar þrennt er Sannkölluð Óheilög Þrenning

Hefði verið hægt í tæka tíð að koma erlenda hluta bankastarfseminnar fyrir í dótturfélögum erlendis ?

Fólst þetta í úrræðaleysi og stirfni Íslenskra ráðamanna í samskiptum sínum við erlend yfirvöld ?

Er Seðlabankastjórinn ennþá Forsætisráðherra ?

Hefur stirfni hans kostað okkur ómældar fjárhæðir ?

Var einhver tregða hjá stjórnendum bankanna að koma á dótturfélögum erlendis ?

Og ef það var þá af hverju ?

Var þetta allt samkrullað við hátt vaxtastig á Íslandi ?

Erum við sem þjóð sek um þetta ?

Eða eru sumir meðal okkar að nota okkur sem sektarlömb ?

Á það að vera hlutskipti okkar að vera SEKTARLÖMB annarra sem sýnt hafa ómælda STIRFNI  voru fullir af GRÆÐGÐI og kórónuðu þetta svo með sinni persónulegu HEIMSKU 

 


Gat Jésú virkilega labbað á vatni ?

Var hann kanski ekki eðlilegur ?

Var hann kanski stökkbreyting ?

Labbaði hann kanski ekki, heldur hljóp ?

Gæti þetta nýst fyrir þá peningalausu Íslendinga sem þurfa að fara úr landi ?

Er þetta ódýrari leið til að komast úr landi ?


Kill them all ! El spirito da revolution

Tökum tímabundið upp dauðarefsingar fyrir þau föðurlandssvik sem framin hafa verið !

Eða eiga þeir sem framið hafa svikin bara að fara á næstu rakarastofu !

og fá sér nýja klippingu !  Svo þeir líti vel út í næsta kokteilboði ?

Hvað er næst ?

Andlitslyfting hjá lýtalækni !

Svo bros þeirra virki eðlilegt ?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband