Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Fituhlunkaheilarnir

Þetta var þá kannski ekki Vatnshöfðaveiki eftir allt saman sem var orsök (ó) stjórnarinnar á Íslandi.

Heldur svo mikið þykkt og svert fitulag utanum heilann að allt valt á hliðina, nema auðvitað þeir sem höfðu "Fituhlunkaheilana".  Þeir treysta áfram á að geta stutt sig við "Þögla meirihlutann" þangað til hann fer að mögla og þá er ekkert eftir fyrir þau nema að leggjast á bæn með biskupnum og biðja fyrir sér.  Það verður eflaust ansi væn....bæn.

Í fréttinni er minnst á einhvern Eric Green. Má ég þá frekar biðja um Eirík rauða eða þá Ástrík og vin hans Steinrík.

Að heyra í Eiríki græna, alveg úti að spræna, gúrkufréttin væna, meðan þjóðina er verið að ræna.


mbl.is Heilinn vegur þungt í offitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bad Time To Fart Mr.Brown and everybody else

en það er ekki bara Gordie Brown sem hefur sparkað í Íslendinga

heldur allt heila skítapakkið heima á Fróni (Flóni)

Leysum vind !

Í Guðanna bænum leysum vind og blásum þessu burt !

Þó ég sé mikill umhverfisverndarsinni þá verður stundum illt að reka út með illu !


mbl.is Brown sparkaði í Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðagjaldeyrissjóðsjól á Íslandi

Fer ekki Aðfangadagur að koma !  Eða ætti þetta að heita (Aðal) fangadagurinn.

Person sá sænski ráðleggur auðvitað svín í matinn.


mbl.is Íslendingajólaball í Finnlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söngfugl ódauðleika og eilífrar æsku

Hver skyldi vera sá fugl sem konungar og ævintýramenn leituðu sem ákafast að en fundu eflaust aldrei ?

Eða ef þeir fundu hann var þetta þá einn af þeim fuglum sem getið er um í Þúsund og Einni Nótt ?

Söngfugl ódauðleika og eilífrar æsku, draumafugl skálda og hirðmanna, konunga og keisara.

Sá fugl sem flýgur útúr kyrrlátu hjarta hins þjakaða og sveimar um hangandi garða Babýlóníuborgar.

Fremsti söngfugl jarðar er allavega Ástralski Lýrufuglinn, sem hefur alþjóðlegt, reyndar yfirþjóðlegt próf í raddkúnstum.  Stél hans undirstrikar Póetískar tilhneigingar hans og það er eins og skáld hafi skapað hann, nema hann skáldi þetta bara allt sjálfur eða sé svo samofinn umhverfi sínu að ekki sé hægt að skera sundur þar á milli.  Meðal þess sem hann hermir eftir eru vélsagir skógarhöggsmanna og máski telur hann þá ekkert ónáttúrulegri í eyðingu skógarins en skógarelda, heldur eflaust að  í réttu jafnvægi, þá hafi enginn skaða af.

Með honum í þessu Youtubebroti er furðufuglinn David Attenborough, en einnig Ástralskur fugl sem ber nafnið Hláturfugl, því hann er síhlæjandi allann daginn og ef hann er ekki hlæjandi, þá gæðir hann sér á froskum og öðrum prinsum í álögum.


Ljóð um frelsið og hláturinn sem lengi lifir

 

 

Fangi NB-262

 

Lokið mig inni í

þúsund ár

og þegar þið opnið dyrnar

mun ég koma út brosandi

sagði fangi NB-262

 

Og eftir þúsund ár

voru dyrnar opnaðar

og hann steig út brosandi

 

Af hverju brosir þú ?  Spurðu þeir

 

Því hér eruð þið enn og

trúið því ennþá að þið

getið ekki orðið frjálsir

 

Þegar það í rauninni

er það eina sem þið getið ekki

er að þið getið ekki

"ekki verið frjálsir"

 

Við þessi orð fór allur hópurinn

að hlæja og þessi skellihlátur

breiddist út til nágrannabyggða

og svo annarra nágrannabyggða

þangað til að allir menn á jörðinni

höfðu fengið snert af þessu hláturkasti

 

meira að segja andfúll krókódíll

á ánni Níl

upplifði það að hlæja

í fyrsta sinn

og honum varð svo mikið um

að hann ældi uppúr sér önd sem hann

hafði gleypt í hádegismat

 

Öndin flögraði uppá bakkann

og tók að leika þær listir

að horfa með báðum augum

í einu á nefbrodd sinn

höfðu menn í nágrenninu af þessu

hina mestu skemmtan

 

Þessi dagur var síðan haldinn

hátíðlegur og kallaður

 

"Dagur hinna miklu hlátra"

 

 




Eldfuglinn Fönix í myndrænu formi með undirspili


Ljóð um Ljósið Kærleikann og Fuglinn Fönix

 

 

 

Af birtu bjartar myndir

 

 

Allt sem er aðskilnaður

Eða missir er ekki kærleikur

Kærleikur er algjör eining

Ástarinnar

 

Birtingarmynd kærleikans

er sverð

 

Birtingarmynd sverðsins

Er vegurinn

 

Á veginum birtist sannleikurinn

 

Það sem ferðast eftir

Veginum er lífið

 

Birtingarmynd lífsins

Felst í orðinu "sjálf"

 

Birtingarmynd sjálfsins er hringur

Innan þess hrings er allt

Ljós og skuggi

Allur ávöxtur skilningstrésins

 

Birtingarmynd hringsins

Er kóbraormur konungsins

Þá náttúru hefur hann að geta

Farið úr ham sínum

Þegar hann hefur gert það

Skríður hann upp skilningstréð

 

Er hann kemst ekki lengra

Upp tréð er birtingarmynd

Hans fólgin í fuglinum Fönix

 

Birtingarmynd þessa fugls

Er hinn fyrsti geisli sem

Klauf myrkrið

 

Þó tré skilningsins sé hoggið

Flýgur sá fugl af þeim stað

Og á annann stað

Til að geta sest

Birtist honum nýtt tré

 

Þegar hann hreyfir sig í limi

Trjákrónunnar birtist

Kobraormur konungsins

Sá ormur leggur síðan leið sína

Niður tré skilningsins

 

Þangað til honum birtist

Í öðru auganu faðirinn

Og í hinu auganu móðirin

Af einingu þeirra beggja

Skapast ný miðja

Móðirin kallar það son

En faðirinn dóttur

 

Þegar þau haldast í hendur

Birtist kærleikurinn

Þegar þau taka fyrsta skrefið

Birtist vegurinn

Þegar þau horfa á hvort

Annað birtist þeim sannleikur

ástarinnar

 

Ekkert fær veginn til að

Hverfa nema tilveruleysi

Þessa andartaks þeirra

 

Annaðhvort eru menn því kærleikur

Eða ekki

 

Annaðhvort eru menn ljós heimsins

Eða þá myrkur þess

 

Að vera eða ekki að vera eins og

SpíraSjeikur gamli( Shakespeare) sagði

Já það er svarið


Aþena

Tileinkað ungmennum Aþenuborgar og drengnum sem skotinn var til bana aðeins 15 ára.

 

Sannir Konungar og Drottningar

sitja ekki í hásætum

heldur halda sig á götunum meðal fólksins

 

Líkt og leiftur um nótt

lýsa þau upp þann örmjóa stíg

sem liggur upp á fjallið helga

 

þaðan sem þau koma sjálf

og þar sem þau dvelja

um eilífðir aldanna

 

Eitt líf meðal manna

er þeim sem eitt andvarp

og síðan eru þau horfin

 

en spor þeirra eru greipt

í götuna og sýnileg þeim

sem vakna

 

Megi Gyðjan Aþena færa þeim Visku Kraft og Baráttuvilja

en einnig Sigur því Réttlætið krefst þess að sigra.


mbl.is Óeirðir í Aþenu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fæðing, Ljósið og Ferðalag í Tíma og Rúmi

Þessi grein er tileinkuð því fólki sem staðið hefur undanfarna mánuði í baráttu fyrir Nýju og Betra Íslandi, sérstaklega vil ég þakka Herði Torfasyni og Láru Hönnu fyrir þeirra framlag.

"Í Austur-Afríku er að finna ættflokk þar sem byrjað er að rækta innilegt samband við manneskjuna alveg frá því fyrir fæðingu hennar.  Hjá þessum ættbálki er fæðingardagur barns ekki talinn vera dagurinn þegar það kemur í heiminn og ekki heldur dagur getnaðarins eins og tíðkast sums staðar annars staðar.  Hjá þessum ættbálki er fæðingardagurinn rakinn til þeirrar fyrstu stundar að barnið verður hugsun í huga móðurinnar. 

Þegar móðirin verður þess áskynja að hún vill geta barn með ákveðnum karlmanni fer hún burt og sest ein niður undir tré.  Þar situr hún og hlustar þangað til hún heyrir söng barnsins sem hún vonast til þess að geta.  Þegar hún hefur heyrt þennann söng snýr hún aftur til þorpsins og kennir hinum verðandi föður hann svo þau geti sungið hann saman þegar þau elskast og bjóða barninu að koma til sín.

Síðan kennir hún gömlu konunum og ljósmæðrunum í þorpinu hann, þannig að á meðan hríðirnar standa yfir og á hinu undursamlega andartaki fæðingarinnar er barninu fagnað með þess eigin söng.  Eftir fæðinguna læra allir þorpsbúar söng hins nýja þegns og syngja hann t.d. þegar barnið dettur eða meiðir sig.  Hann er sunginn á hátíðarstundum, sigurstundum og við vígslur.  Og þegar barnið hefur fullorðnast og giftir sig er söngurinn sunginn og við ævilok safnast ástvinir hans eða hennar saman við dánarbeðinn og syngja þennann söng í síðasta sinn."(Úr bók Jack Kornfields "Um Hjartað Liggur Leið" í þýðingu Sigurðar Skúlasonar)

 

Mæður geta auðvitað ekki annað en verið viðstaddar fæðingu barna sinna.  Feðurnir afturámóti máttu eitt sinn ekki vera viðstaddir því þeir voru bara fyrir, taldir til mestu óþurftar, höfðu ekkert vit á þessu o.s.frv. sem breyttist svo sem betur fer og því átti ég sjálfur þess kost á sínum tíma að vera viðstaddur fæðingu sonar míns, sem grét og gat vart lyft augnlokum sínum, en opnaði loks annað augað og við horfðumst í augu, Faðirinn og Sonurinn.

Við lásum í augu hvors annars, leitandi og skimandi og fundum ákveðin tengsl, óháð tíma og rúmi, sem ekki hafa rofnað síðan, því það var eins og við hefðum alltaf þekkst og að þessi upplifun sem hann var að hefja en ég hafði upplifað dag eftir dag í ákveðinn tíma, var bara staður til að mætast á í tilteknu samhengi, jörð til að vera á, tími til að vera saman. 

Menn fæðast grátandi og þegar þeir deyja grætur fólk.  Það er ekkert nýtt.  Lífið sjálft er samt ekki andstæða dauðans heldur fæðingin.  Það er hægt að líta á fæðinguna sem plúspólinn og dauðann sem mínuspólinn og á milli þeirra er rafstraumur sem við köllum "Líf".  Segir ekki nútímaeðlisfræði að orka eyðist ekki.  Ég trúi sjálfur að mitt innra eðli sé bara ljós, sem birtist í ytri myndum sem tími.  Ljós á ferðalagi og söngur barnsins ómar í sjálfum mér.  Það þarf ekki annað en að horfa upp í himininn, skynja að maður sé staddur í Vetrarbrautinni og á hreyfingu,  hvílíkt ævintýri, með skrímslum og álfadísum, dvergum tröllum og mönnum, dýrum og vitleysingum og sjóræningjum.

Þjóðir fæðast og endurfæðast.  Stjórnmálaflokkar fæðast og endurfæðast.  Menn fæðast og endurfæðast.  Það er til fullt af frábæru og fínu fólki, hér á Íslandi sem annars staðar á þessari jörð.  Hamingja er það dýrmætasta sem við eigum fram að færa úr gjöfulu hjarta okkar til barna okkar og til hvers annars.  Stöndum saman áfram og alltaf. 

Vekjaraklukkan hringir fyrir stjórnvöld, en næsta vekjaraklukka ætti að vera færð hinum þögla meirihluta þjóðarinnar, því gálgafresturinn stendur aðeins fram yfir Jól, eftir það er óafsakanlegt að sitja bara hjá og glápa.


Spilin lögð á borð Ríkissaksóknara

Þetta er rétta húsið allavega til að safnast fyrir utan og betra er seint en aldrei.  Fínt útspil hjá Röddum fólksins og Herði Torfa.  Verður þetta kannski besta glæpasagan fyrir þessi jól ?

 


mbl.is Raddir fólksins hjá saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband