20.10.2008 | 00:31
Georg Bjarnfreðarson tekur völdin í Seðlabankanum
Nú undir miðnætti tók Georg Bjarnfreðarson öll völd í Seðlabankanum. Á myndinni sést hann með tveimur öryggisvörðum og með kaffibolla í hendi, slappa aðeins af eftir yfirtökuna, áður en vinnan hefst við að telja krónurnar sem eftir eru. Loksins kemst maður í eitthvað almennilegt starf. sagði hann glaðhlakkalegur. Ég hef allavega fleiri háskólapróf en Davíð Oddsson, sá svikapési. Hann hefur t.d. enga gráðu í uppeldisfræði, enda hefur hann alið sjálfan sig illa upp á síðkastið. Ég fíla mig bara einsog Che Guevara sagði Georg, því einsog þið vitið þá var hann nú einu sinni Seðlabankastjóri á Kúbu. Nú er ég bara eins og Che. Hann benti fréttamanni á peysuna sína. Er þetta ekki rauð peysa. Já nú munu margir sjá rautt, vittu til. Þessi bær á eftir að vera málaður rauður og hér verða ekki talaðar neinar útlenskar tæpitungur. Nei meðan ég er Seðlabankastjóri verður töluð hér Íslenska og hér munum við telja í krónum, ekki aurum eða evrum, því af aurum verða menn apar og af evrum verða þeir apakettir, sagði Georg og skellti hurðinni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.