12.1.2009 | 20:03
Málum bæinn rauðann ! El Spirito Da Revolution
Það var kominn tími á að skreyta byggingar í Reykjavík aftur. Eftir Anti-Hipp_Hopp_Graffiti_Hreinsunina. Útþurrkunina á heilum menningarafkima. Svo allt yrði svo pent og lekkert eins og í Kardimömmu-bænum, með skrifstofuháhýsunum í Borgartúninu sem virka einsog turnspírur í helvíti. Þurrkum þau út og helvítis auðpakkið sem bara græddi og græddi á veikingu krónunnar.
Átti leið fram hjá Austurbæjarskóla á Laugardaginn. Búið að þurrka út vegglistaverkin eftir Graffarana. Á veggjunum voru skilti sem á stóð eitthvað um að ef þú spreiaðir eitt strik yrðirðu kærður til Lög-Reglu. Gleymum ekki Íslandi og Höfuðborginni þar sem á sér stað niðurbrot Íslensks velferðarkerfis og hugmyndafræðilegt skipbrot þeirra sem nú sitja sem fastast í sætum sínum og vilja ekki sinn feita rass flytja.
Lifi Palestína, en einnig barátta Íslendinga fyrir réttlæti og mannsæmandi lífi á þessu flæðiskeri.
Ekki meira krapp. Meira Rapp
Fundað með mótmælendum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Graffaðu á eigin bílskúr
Kalli (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 20:43
Kalli krapp ?
Máni Ragnar Svansson, 13.1.2009 kl. 00:27
Nei, um að gera að graffa á eigin bílskúr. Bara flott. En ætli þú mættir það fyrir nágrönnunum?
Rúnar Þór Þórarinsson, 13.1.2009 kl. 16:59
Nei það er bannað er það ekki En það má graffa sjálfann sig, þó eflaust ef það raskar ekki "allsherjarreglu" og ganga graffaður um götur og torg ? Kannski vantar bara gangandi graffvegg um göturnar. Lifandi graffvegg
Máni Ragnar Svansson, 13.1.2009 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.