Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
6.11.2008 | 23:19
Besservisaheilkennið
Ég fullyrði að á Íslandi fyrirfinnist hvergi meira úrval gáfumanna og kvenna, en þó gera fáir hér neitt af viti, nema ólánið elti þá.
Meirihluta tímans er fólk í samkeppni um hver er gáfaðastur, reynir að vera gáfaðri, en næsti maður, sem líka er tröllgáfaður.
Kannski ættum við að fá sálfræðing með rannsóknarnefndinni, sem á að rannsaka bankahrunið. Hann gæti fundið út hvort mikill hluti þjóðarinnar, sé haldinn því heilkenni sem kalla mætti :
"Besservitaheilkennið"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2008 | 21:03
Ennþá blómstrandi utandyra í byrjun Nóvember
Átti leið um grasagarðinn í dag á hjólinu, á leið í sund og kíkti aðeins á hvort eitthvað væri blómstrandi ennþá, jú jú Kínavöndur þetta himneska blóm, ennþá blómstrandi utandyra í Reykjavík, í byrjun Nóvember.
Þetta blóm vex villt í Yunnan í Kína og í Tíbet, en með hjálp góðra kvenna í Grasagarðinum, hefur því verið plantað þarna og það vex einsog ekkert sé, þó stundum blási og frjósi, teygir það höfuðið til himins og opnar sig einsog heiðblár himinn á eintali við almættið. Sannkallaður meistari, en fáar eru örugglega flugurnar til að frjóvga það, enda þroskar það ekki fræ hérlendis, en hvílík harka, en þó mild og fögur ásjóna. Óborganlegt !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 22:18
Köstum móðursýkinni
Þegar ég var krakki, fannst mér snjókast skemmtilegra, en skítkast, en núna finnst flestum móðursýkiskast skemmtilegast.
Það felst í því, að þá kastar maður móðursýki sinni í einhvern annann þátttakenda og sá sem fyrstur sýkist getur svo farið í næsta móðursýkisbanka, með 10 þúsund króna seðil með mynd af móður sinni á.
Eftir svo að hafa talað við vin sinn í móðursýkisbankanum, er honum afhentur seðill, svokallaður "Afturendalausiyfirdráttarseðillinn", sem hann fer svo með í dótturfélag Móðurbanka móðursýkisbankans og þegar þangað er komið, þá.............................................
fær hann ævarandi klósettsetu í neðstu deild Alþingis og þau fríðindi að enginn hlustar á hann
nokkurntíma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2008 | 21:12
Árshátíð jólasveina á Hilton ?
Bærinn er fullur af beiskum og blaðrandi jólasveinum.
Náði niður nokkrum nöfnum á þeim, ekkert persónulegt, bara.........
nokkur skuggaleg nöfn í skammdeginu :
Bankaskerfill, Krónukrækill, Þumbaþambi.......
Dinguldurtur, Rassorkuskelfir, Mykjumangi, Rjómafleytir, Ólánsbaggi, Tíuþúsundkallakallinn.......
Risaeðlubankabjálfinn, Vímuefnahagsvandinn, Gengisfallsgaurinn, Ljósastaurblankur, Besservisinn......
Gáfnagrímur, Froðuþrjótur, Eistnasprengir, Vísakortstittur, Skyrslettir, Alvegstaurblankur......
Gúrkufréttagaurinn, Verðhækkanaslettir, Fjölskylduhjálpin, Flösuþyrill, Makakrókinnkrækill, Vælukjóinn....
Sáðfallafeykir, Kennarasleikir, Kokteilboðflennir, Lygalaupur, Hlutabréfakaupir.......
Viðskiptableyjubjálfinn, Ævisparnaðsgleypir, Hillíbillídrumbur, Brauðfótur, Gullfótsglennir.......
Kaupþingeyingur, Gæruglitnir, Kaupæðisklunni, Fýkuryfirhæðir, Þjóðhnappakreppir, Hagstjórnarhálfvitinn......
Bankahrunshrellir...................
........... ..... ... .. .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2008 | 00:27
Ég vil fá Rottu í jólagjöf !
Þær eru ekki skítugar lengur ! Baða sig reglulega
Miklu siðaðri ! Hafa þroskast heilmikið andlega
Með falleg augu einsog Bambi ! Ég er að hugsa um að fá mér rottu
Ég vil fá rottu í jólagjöf !
Besta við dýr er að þau tala ekki ! T.d. um efnahagsmál
Yfirleitt tala þau bara með augunum ! Og þau hafa engar áhyggjur
Maðurinn er reyndar eina lífveran á jörðinni sem hefur áhyggjur !
En ef aðrar lífverur gætu talað ! Myndu þær örugglega segja við okkur !
"Don´t worry, BE HAaaaaaPpppppPpppppppYyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyy"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.11.2008 | 00:26
Er Hannes Hólmsteinn jólakötturinn í ár ?
Sem fjölskyldufólk á Íslandi varar krakkana sína við ?
Svarti Pussukötturinn(pussycat) sem gleður landann með sinni sýn á Halldór Kiljan Laxness. Halldór sjálfur hefði örugglega fílað Hannes í botn !
Sem kemur reglulega fram í Ríkissjónvarpi, og DabbaBabblar
Ríkisstarfsmaðurinn og prófessorinn sem býðst til að lækka laun sín
Fulltrúi almennings í Seðlabankaráði
Knésitjari Möggu gömlu Thatcher, sú kunni nú að hossa drengnum !
Hefði hann getað orðið prófessor við einhvern annann háskóla en Íslenskann ?
Er Hannes ennþá með Íslenskt ríkisfang ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 23:30
Er möguleiki á að Rússar gangi Í EB ?
Ekki bara Íslendingar. Heldur að allir Evrópumenn sameinist í einu bandalagi. Rússar eru jú Evrópuþjóð, ekkert síður en Úkraínumenn. Pétur mikli stofnaði Pétursborg við Eystrasalt í den, vildi opna glugga til vesturs og saga Rússlands er samofin sögu Evrópu.
Skilyrði til að Rússar gætu þetta, væru þau sömu og fyrir Tyrki, aukið lýðræði, sem væri hagstætt fyrir Evrópu og Rússa. Rússar eru í klemmu, þeir geta ekki keppt við Bandaríkjamenn í vígbúnaðarkapphlaupi og byggt á sama tíma upp innviði landsins. EB og Rússland myndu losna við spennuna, sem er á landamærum veldanna, bæði í Kákasus og í A-Evrópu, þar sem Bandaríkjamenn vilja koma upp eldflaugaskotpöllum, sem beint er að Rússlandi, Kína, Mið-Austurlöndum og Indlandi. EB myndi auka stöðugleika í austur og geta losað sig við bandarískan her frá Evrópu og mögulega myndu verða fólksflutningar austur á bóginn, svipað og Hitler og Napóleon hugsuðu sér, en þó undir öðrum formerkjum, núna byggt á friðsamlegri sameiningu og lýðræði. Rússland er ótrúlega stórt land. Það nær yfir 40% af heildarlandflæmi Evrópu, meira en einn áttunda af þurrlendi jarðar, er stærsta land í heimi, en hefur þó einungis 142 milljónir íbúa, en EB um 500 milljónir. Svæðin í austri, syðst, bjóða uppá mikla möguleika. Rússar kalla þau Austrið og hafa gert kvikmyndir, sem örugglega fáir hafa séð, sem þeir kalla Austra, svipað og Bandaríkjamenn með sína Vestra. Mér datt þetta svona í hug, á þessu Sunnudagskvöldi, þegar ég nennti ekki að pæla meira í Íslenskum efnahagsmálum og þeim lítilmótlegu persónum, sem þar koma við sögu. Hægt er að smella á myndina, til að sjá þetta betur á kortinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 17:16
Var Margareth Thatcher kona ?
Er Hannes Hólmsteinn karlmaður ?
Eða er hann kona ?
Þurfum við fleiri konur í stjórnunarstöður ?
Hvernig konur ?
Kallakonur eða konukalla ?
Var Margareth Thatcher góð kona. Maður heyrir þetta svo oft, ef konur bara stjórnuðu, þá...........
Ég tel að það séu málefnin, en ekki kynferði, litarháttur eða annar mannlegur mismunur sem er aðalatriði, heldur það sem tiltekin manneskja segir, gerir og vill.
Ímyndargerfi skipta engu máli lengur, ekki hárgreiðsla, fatnaður o.sfrv
Ég er tilbúinn að fylgja ljótustu manneskjunni á Íslandi, með hvaða hárgreiðslu sem er og hvaða kyns sem er og þó hún væri með sama litarhátt og Obama, ef hún bara segir satt, efnir það sem hún segir og vill það sama og ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.11.2008 | 12:16
Meðvirkni eða mótmæli
Mætum á Hlemmi í dag
laugardaginn 1. Nóv
kl 14:00
og göngum á Austurvöll -
Ekki vera þolandi,
vertu þátttakandi -
Krefjumst ábyrgðar, kosningar strax!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)