Íslenski Draum-órinn

COIN FACTORY BANK Stórir Bankar

Stórar Verksmiðjur

Stórir Kallar

Stórar Afurðir Úr Afturendanum

Hvar endar þetta allt saman ?

Þetta hefur náð enda !

Enda, er endaþarmurinn ekki endalaus, þó hann styðjist við langann þarm laganna

 

Eða erum við bara að spila "Löngu Vitleysu"....spila út

Þrátt fyrir alla okkar menntun og mátt ?


Íslandsvinurinn Borat er kominn á klakann

boratSacha Baron Cohen ætlar að sögn að gera nýja mynd um Borat og á hún að ske á Íslandi.

Í myndinni mun hann leika fulltrúa Bandaríska Seðlabankans sem kemur með í ferðatösku

stórt gjaldeyrislán

sem nota á til að reisa olíuhreinsunarstöð

í miðborg Reykjavíkur

Þig eruð alveg einsog Kasakstanar !

Þið eruð fínt fólk en fólk er fífl !

Fífl eru líka fólk, alveg einsog þið !


Verkalýðshreyfingin ??????????????????????????

lukkutröllÍ Eden í Hveragerði býr lukkutröll Verkalýðshreyfingarinnar.

Áttavillt jarðtröll sem úthlutar sumarbústöðum

þó ekki yfir 400 fermetra 

en innfalið er:

einkaþota, óheftur aðgangur að raunveruleikasjónvarpi, ókeypis tannlækningar, bæklingurinn "Hvað er hægt að gera í stöðunni ?" og síðast en ekki síst diskurinn með laginu "Knocking on heavens door"(bankað á bankanna dyr)

og einnig má nefna DVD Golden Edition þáttaröðina "Þjóðarsátt í blíðu og stríðu" eftir Ófeig Ófeigsson hagfræðing, sem núna reyndar starfar á leikskólanum "Kátir voru kallar" í Skerjafirði


Aldrei meira Kanarí....förum bara Færeyjar...í...........

Því þar með sólskinsbros búa okkar frændur

og litli bróðir huggar oss

meðan Seðlabankinn um hábjartann dag er rændur

og hrokinn útsprændur

frá öðrum við fáum bara kaldann koss

hvað verður eiginlega nú um oss

annað en að reisa á loft níðsins hross

og finna út hver ekki verður dæmdur

Charlie Chaplin í myndinni "Gullæðið" gæðir sér á öðrum skónum sínum

Í þessu broti úr myndinni "Gullæðið" gæðir Charlie og félagi hans sér á öðrum skónum hans Charlie og minnir þetta svolítið á kreppur fyrr á tímum á Íslandi.  Undirleikinn annast Bítlarnir með laginu "Old Brown Shoe"


Charlie Chaplin flytur ræðu í lok myndarinnar "Einræðisherrans"

Mér finnst þetta ein besta ræða sem ég hef heyrt flutta.  Flutt af eldmóði og þrá, ást og örvæntingu, von og trú, lífsþrótti og sannri tilfinningu fyrir því sem er mikilvægast.  Hún er flutt undir lok myndarinnar "Einræðisherrans".  Í þeirri mynd skopast Charlie að Hitler og nazismanum, en í þessari ræðu birtist manni húmanísk sýn hans á samfélög manna.  Myndin er gerð árið 1940. 


Charlie Chaplin og Nútíminn

Þetta YouTube myndband segir manni sitthvað um okkar tíma og Charlie klæðir dapurlegar staðreyndir nútímans í búning sprells og skops á listilegann hátt. 


Hugsaðu öðruvísi (Think Different)

"Think Different" var auglýsingaslagorð skapað fyrir Apple tölvufyrirtækið árið 1997 og notað í fræga sjónvarpsauglýsingu(ég tek það fram að ég er ekki að setja þetta hér fram til að auglýsa Apple), heldur til að vekja athygli á því, að í landinu skortir ekki aðeins gjaldeyri, heldur líka hugsjónir, eldmóð og sjálfstraust.  Hverjar eru hetjur okkar, þá meina ég núlifandi.  Væri ráð að leita til leikskólabarna eftir slagorði, ef gerð væri svona auglýsingamynd fyrir Íslensku þjóðina, (en ekki til að auglýsa vöru eða fyrirtæki)  og hverjir ættu þá að birtast í henni ?  


Eru til nægar birgðir af hláturgasi í landinu ?

Ég var í partíi með Birni Bjarnasyni um daginn, þar sem Sérsveitin kynnti nýja tegund af gasi. 

Þetta var í handhægum brúsum og innihélt dósahlátur Seðlabankastjóra

Við ræddum um Araba og Talibana og dularfulla TERRORISTA langt frammá nótt

og skellihlóum....djöfulsins fjör


Er Ísland að breytast í Þýskann dramaþátt, með þýskum skemmtiþáttainnslögum ?

Af hverju er Davíð ennþá seðlabankastjóri ?  Er það af því hann er svo skemmtilegur, þó hann sé hrokagikkur og stirðbusi og til einskis annars nýtur en sem uppistandari á hórmangarakrá í Hamborg.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband