Færsluflokkur: Bloggar

Hagfræðingar Íslands sameinist í einni niðurstöðu El spirito da revolution

Konur eruð þið ekki orðnar svolítið leiðar á þessum uppblásnu hagfræðinga gáfnaljósum, hver með sína sérvisku, meðan börnunum ykkar er stefnt í voða ?  Er ekki að fara að koma tími til að ákveða hvaða hagfræðing á að taka í bólið og hverjir eiga að ylja sér á því sem úti frýs ?

tekið af bloggi Láru Hönnu Einarsdóttur :

Svartfellingar til fyrirmyndar
Óþarfi er að rífast um, hvort taka megi upp evru einhliða eða ekki. Það hefur verið gert án þess að spyrja kóng eða prest. Svartfjallaland gerði það með góðum árangri. Ráðgjafi landsins var Daniel Gros, forstöðumaður Centre for European Policy Studies í Bruxelles. Hann hefur skoðað Ísland og segir bezt að gera það sama hér. Ekki þegar um hægist. Heldur núna strax. Hann vill ekki lánið frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, sem hann segir gera illt verra. Hann segir Ísland geta útskýrt upptöku evru fyrir eigendum hennar sem neyðarráðstöfun. Sem fyrsta skrefið að innleiðingu evrópskra mannasiða.

 

Sýnum :        KRAFT    DUG     OG    ÞOR


Karlmenn leggjum niður völd ! El spirito da revolution

og stofnum hljómsveit eða eitthvað !  Davíð gæti skrifað barnabók !  Björn Bjarnason gæti leikið í hryllingsmynd !  Árni gæti gerst dýralæknir í Kongó og Geir gerst handritshöfundur að nýrri Íslenskri Leiðar-ljósaseríu ! 

Burt með alla leiðinlegu kallana.  Gerumst fyrsta þjóðríkið, þar sem allar toppstöður í stjórnsýslunni

eru mannaðar konum !

Tökum einhliða upp aðra mynt, því það er ódýrara.

Húsmæður !  Að heiman og heima.  Sýnum hagsýni í verki !

Því það er eina hagfræðin sem við þurfum að kunna !

og hana kunnið þið !

 

Sýnum :        KRAFT    DUG     OG    ÞOR


Bankahrun dauðans El spirito da revolution

Þetta myndband er tileinkað litlu frænku minni henni Silju, sem alltaf brosir og hefur svo stórt hjarta.  KVENNABYLTING :  JÁ  TAKK

 


Forseti og Glitnir og Heligoland

Tekið af vef Ásatrúarfélagsins :

Forseti: Goð sátta og réttlátra dóma. Forseti er sonur Baldurs og Nönnu. Bústaður hans heitir Glitnir. 

Þetta nafn Glitnir vísar til einhvers sem glitrar og er alls óviðeigandi á peningastofnun, byggðri á glópagulli, því upphaflega er átt við hús byggt úr gimsteinum, sem frá geisla sættir og réttlátir dómar.

 

Annað athyglisvert sem ég fann : Heligoland

Lítil eyja í suðausturhorni Norðursjávar.  Íbúar:1650.  Hét áður Heilagaland, að talið er vegna langra tengsla sinna við goðið Forseta.  Auk Þýsku tala eyjarskeggjar sem eru Frísar, sína eigin mállýsku, Heilaglandísku, sem er hluti af Norður-Frísnesku.  Núna eru þetta tvær eyjur, en voru áður samtengdar, allt til 1720, þegar rof kom á milli,  í miklu stormflóði.  Þarna er mjög milt loftslag, næstum laust við frjókorn, hentugt fyrir fólk með ofnæmi og ræktaðar hafa verið þarna fíkjur frá 1920.  

Eyjarskeggjar hafa eigin fána og byggð virðist hafa verið þarna frá forsögulegum tíma.

Þeir sem vilja kynna sér þetta frekar geta smellt á tengilinn fyrir ofan, en ég ætla einungis að geta þess sem mér þótti athyglisvert, en það er útfrá sögu þeirra:

Sem hluti af Þýska Keisarveldinu, var á eyjunum staðsett stór hernaðarbækistöð Þýska sjóhersins og í Fyrri heimstyrjöldinni voru eyjarskeggjar fluttir uppá meginlandið og þeir snéru ekki aftur fyrr en 1918, en á valdatíma Nasista var sjóbækistöðin endurræst og á eyjunum voru líka vinnufangabúðir, sem kallaðar voru Lager Helgoland.

Á meðan Síðari heimsstyrjöldin stóð yfir, hírðust eyjarskeggjar í hellum, til að verjast loftárásum bandamanna og flestir sem létu lífið voru, þeir sem mönnuðu loftvarnarbyssurnar.

Frá 1945 til 1952, voru óbyggðar eyjurnar notaðar sem sprengjuæfingasvæði.  Þann 18. April 1947, sprengdi hinn "Konunglegi Breski Sjóher" 6.800 tonn af sprengiefni ("Big Bang" eða"Breska Bomban") sem skapaði eina stærstu kjarnorkusprengjulausu einstöku sprengingu í sögunni.  Sprengingin hristi eyjuna margar mílur niðrí undirstöðurnar og breytti varanlega lögun hennar.

 Árið 1952 var eyjunum skilað aftur til Þýskra yfirvalda, sem urðu að hreinsa upp, gífurlegt magn af ósprungnu sprengiefni, endurhanna landslag eyjunnar og endurreisa húsin, áður en íbúarnir gátu flust þangað aftur.

Heilagaland er nú ferðamannaparadís, sem nýtur (tax exempt status), þar sem það er hluti af Evrópusambandinu, en undanskilið (EU VAT area) og (custom union) og þarafleiðandi, er mikill hluti efnahagsins byggður á sölu sígarettna, áfengra drykkja og ilmvatna, til ferðamanna sem sækja eyjurnar heim.

 


 

 

 


Stefán frá Möðrudal biður að heilsa

Stefán frá Möðrudal

 

Ef Stórval væri nú kominn 
Þá væri sko fjör
En nú spilar hann á himnum
við meistarans fótaskör

Sumir koma aldrei aftur 
en lifa þó með okkur enn
Af gullhjarta þeirra geislar
bregður birtu á götur og menn


Besservisaheilkennið

Ég fullyrði að á Íslandi fyrirfinnist hvergi meira úrval gáfumanna og kvenna, en þó gera fáir hér neitt af viti, nema ólánið elti þá. 

Meirihluta tímans er fólk í samkeppni um hver er gáfaðastur, reynir að vera gáfaðri, en næsti maður, sem líka er tröllgáfaður.

Kannski ættum við að fá sálfræðing með rannsóknarnefndinni, sem á að rannsaka bankahrunið.  Hann gæti fundið út hvort mikill hluti þjóðarinnar, sé haldinn því heilkenni sem kalla mætti :

"Besservitaheilkennið"


Ennþá blómstrandi utandyra í byrjun Nóvember

Kínavöndur Átti leið um grasagarðinn í dag á hjólinu, á leið í sund og kíkti aðeins á hvort eitthvað væri blómstrandi ennþá, jú jú Kínavöndur þetta himneska blóm, ennþá blómstrandi utandyra í Reykjavík,  í byrjun Nóvember.

Þetta blóm vex villt í Yunnan í Kína og í Tíbet, en með hjálp góðra kvenna í Grasagarðinum, hefur því verið plantað þarna og það vex einsog ekkert sé, þó stundum blási og frjósi, teygir það höfuðið til himins og opnar sig einsog heiðblár himinn á eintali við almættið.  Sannkallaður meistari, en fáar eru örugglega flugurnar til að frjóvga það, enda þroskar það ekki fræ hérlendis, en hvílík harka, en þó mild og fögur ásjóna.  Óborganlegt !


Skaribas ase me mana sikono moikana


Köstum móðursýkinni

SnjókastÞegar ég var krakki, fannst mér snjókast skemmtilegra, en skítkast, en núna finnst flestum móðursýkiskast skemmtilegast.

Það felst í því, að þá kastar maður móðursýki sinni í einhvern annann þátttakenda og sá sem fyrstur sýkist getur svo farið í næsta móðursýkisbanka, með 10 þúsund króna seðil með mynd af móður sinni á.

Eftir svo að hafa talað við vin sinn í móðursýkisbankanum, er honum afhentur seðill, svokallaður "Afturendalausiyfirdráttarseðillinn", sem hann fer svo með í dótturfélag Móðurbanka móðursýkisbankans og þegar þangað er komið, þá.............................................

fær hann ævarandi klósettsetu í neðstu deild Alþingis og þau fríðindi að enginn hlustar á hann

nokkurntíma


Árshátíð jólasveina á Hilton ?

ÞjóðhnappakreppirBærinn er fullur af beiskum og blaðrandi jólasveinum.

Náði niður nokkrum nöfnum á þeim, ekkert persónulegt, bara.........

nokkur skuggaleg nöfn í skammdeginu :

 

Bankaskerfill, Krónukrækill, Þumbaþambi.......

Dinguldurtur, Rassorkuskelfir, Mykjumangi, Rjómafleytir, Ólánsbaggi, Tíuþúsundkallakallinn.......

Risaeðlubankabjálfinn, Vímuefnahagsvandinn, Gengisfallsgaurinn, Ljósastaurblankur, Besservisinn......

Gáfnagrímur, Froðuþrjótur, Eistnasprengir, Vísakortstittur, Skyrslettir, Alvegstaurblankur......

Gúrkufréttagaurinn, Verðhækkanaslettir, Fjölskylduhjálpin, Flösuþyrill, Makakrókinnkrækill, Vælukjóinn....

Sáðfallafeykir, Kennarasleikir, Kokteilboðflennir, Lygalaupur, Hlutabréfakaupir.......

Viðskiptableyjubjálfinn, Ævisparnaðsgleypir, Hillíbillídrumbur, Brauðfótur, Gullfótsglennir.......

Kaupþingeyingur, Gæruglitnir, Kaupæðisklunni, Fýkuryfirhæðir, Þjóðhnappakreppir, Hagstjórnarhálfvitinn......

Bankahrunshrellir...................

........... .....  ... ..                 .


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband