22.10.2007 | 14:54
Af hverju er rigning í dag??
Væri ekki sniðugra t.d. að hafa sól eða er þetta æfingaeyja í að hafa hugarró, sama hvað á dynur ??
Minnir mig á söguna um andlega meistarann "Spinko Betty" sem kom að Mývatni í sumar, gekk niður að vatninu og settist í jógastellingu.
Eftir ekki svo langa stund, höfðu milljónir blóðþyrstra flugna sem vatnið heitir eftir, umkringt hann og þær voru ekki komnar til að öðlast neina hugarró, heldur steyptu sér yfir hann eins og japanskar sjálfsmorðsflugvélar.
Meistarinn spratt á fætur, gaf "Nirvana" tímabundið upp á bátinn og tók á rás.
En á leiðinni, þar sem hann hljóp, uppgvötaði hann nýja hugleiðsluaðferð, "hugarró á hlaupum" og sagði við fréttablaðið "Mývatnstíðindi" í sumar, að hann væri ævinlega þakklátur "The Mývarg" fyrir að hafa opnað augu sín fyrir nýjum möguleikum.
Svo ég snúi mér aftur að rokinu og rigningunni sem núna er í Reykjavík, að fyrst það er bersýnilegt að veðrið ætlar ekki að gera neitt til að gera þennann dag skemmtilegri, þá verð ég víst bara að sjá um það sjálfur og kannski opnar það einhverjar nýjar leiðir og ég er viss um að það eina sem geti breytt veðrinu, sé að vera bara nógu fjandi "happy"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2007 | 12:03
"Streit Pride Dagur"
Af hverju ekki að hafa einn frídag á ári, tileinkaðann ást og unaði hins"gagnkynhneigða"( kynhneigðin hefur það gagn að börn fæðast) manns og konu. Ég tek það fram að þeir sem eru ógagnkynhneigðir, gera samfélaginu ekkert ógagn, heldur að kynhneigð þeirra hefur einungis ekki það gagn, að börn fæðist. Við erum og eigum líka að vera stolt af okkar kynhneigð.
Flestir frídagar á Íslandi, eru tengdir kristinni trú og Jesú var hreinn sveinn, að talið er, þegar hann var krossfestur, en sem betur fer tóku menn almennt ekki uppá þeim sið að vera hreinir sveinar, því annars værum við ekki til í dag ! Gífurlegur ótti er bersýnilega í kristinni trú, gagnvart öllu sem tengist frjósemi og svo langt gekk þetta á miðöldum, að þeir útrýmdu heilli stétt vinnandi kvenna, hinum bráðnauðsynlegu ljósmæðrum, því allt sem tengdist fæðingu barna og frjósemi, var svo stórhættulegt, að valdamenn titruðu af skelfingu og aumingjaskap. Lítið er því að græða á kristinni trú í sambandi við frjósemi.
Ég legg því til að frídagurinn verði tileinkaður Frey og Freyju, því þessi nöfn þýða bókstaflega frjór og frjó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2007 | 10:46
Ástleitni á almannafæri bönnuð???
Er eitthvað í lögreglusamþykkt Reykjavíkur um ástleitni á almannafæri??? Gæti hún kannski raskað almannareglu??? Hefur fólk ekki lengur tíma, til að sýna væntumþykju sína og ást, er hún bara sýnd heimavið, seint á kvöldin eða um helgar, ef tími vinnst til, þegar búið er að sinna öllum mikilvægu hlutunum. Ég tek það fram, að ég er ekki að tala um kynlíf á almannafæri, heldur ástleitni. Ég fór að hugleiða þetta, því minntist ekki að hafa séð óralengi, kærustupar leiðast á götum Reykjavíkur. Er það hallærislegt að halda í höndina á kærustunni sinni, en ég spyr á móti: Er það svalt að gera það ekki????
Er enginn ástfanginn í Reykjavík???? Einhver var einhverntíma að telja mér trú um að við hefðum svo mikið miðjarðarhafsblóð í æðunum, værum svo tilfinningaríkir og heitir, líktumst Spánverjum o.s.frv. Hvernig þá??? Inni í okkur????
Í guðs bænum sýnið ást ykkar! Eltið hvort annað á götunum, hlæjið, fíflist, glettist, leiðist, látið tilfinningarnar leiða ykkur í gönur, já "Gönuhlaup", kyssist í Bónus, sláið í rassinn á hvert öðru, farið í haustlaufasturtu saman úti, já bara allt!
Bara allt annað en þennann áunna og almennt viðurkennda "kaldrana"
Við erum með skrúfað frá kalda krananum, en hvernig væri að skrúfa frá þeim heita, svo mannlífið á götum bæjarins yrði allavega volgt???
Ást | Breytt 7.2.2009 kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2007 | 23:59
Minnismerki á himnum
Mér finnst dálítið Egó-sentrískt að tengja þetta bara við John Lennon. Þannig að þegar ég horfði á þessa friðarsúlu, hugsaði ég til fólksins, sem farist hefur í styrjöldum og gerir það enn, einnig til sjómannskvennanna, sem misst hafa eiginmenn sína, hér á Íslandi og allra þeirra sem eiga um sárt að binda, vegna láts einhvers úr fjölskyldu sinni. Allir þarfnast þeir friðs í hjarta sínu.
Ég varð einnig hugsað til þeirra dýrategunda, sem eru farnar á braut. Ég tel að það sem aðskilur okkur frá hinum lífverum jarðar okkar, er að við mennirnir teljum okkur eina hafa sál, þó sumir reyndar efist um það og að við erum einu lífverurnar sem teljum dauðann endanlegann enda á lífi sínu. Þessi afstaða okkar er byggð á mjög svo skaðlegum misskilningi, með því að við teljum dauðann, andstæðu lífsins.
En það er fæðingin sem er andstæða dauðans, en lífið sjálft hefur enga andstæðu.
Þeir dánu, hvort sem það eru menn eða aðrar lífverur, hafa bara farið í fjarlægt land, í öðrum tíma, þeir koma ekki aftur til okkar, en frekar síðar en fyrr, munum við ferðast til ástvina okkar og þá verður kátt á hjalla, sagðar sögur og skálað með gullnum bikurum lífs og gleði. Minnumst því Johns Lennons, en ekki neitt síður hinna, sumra sem látist hafa í baráttu fyrir friði, en líka annarra, svo sem þeirra sem látist hafa við það eitt að færa björg í bú, já og fiðrildisins, sem rétt í þessu, var lamið sundur og saman á gluggarúðunni, af haustvindinum og síðan drekkt af regni sunnan úr höfum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2007 | 15:44
FJÖLGUM OKKUR
Fjölgum okkur í MILLJÓN sem fyrst.
Hugsum okkur að þessi mikla eftirspurn eftir erlendu vinnuafli eigi eftir að haldast á næstu árum, kannski aukast, hjá þjóð sem telur 300 þúsund manns og er bara lítill ættbálkur á eyju í N-Atlantshafi. Þessi eyja var einangruð svo öldum skipti og þannig tókst fólkinu að viðhalda tungumáli sínu, en einnig vegna takmarkalausrar ástar á hinu skrifaða orði.
En nú er öldin önnur. Allar dyr hafa opnast og efnahagurinn blómstrar sem aldrei fyrr. Þetta kallar á aukna eftirspurn eftir vinnuafli, síaukna að ég myndi telja. Á sama tíma eignast hver íslensk hjón fá börn og gæti þróunin orðið líkt og á Ítalíu og í Þýskalandi, að þjóðinni myndi fyrst og fremst fjölga á næstu 10-20 árum, fyrir tilverknað innflytjenda.
Ég legg því til að pólitískt markmið númer 1 á næstu árum verði, að gerð verði fjölskylduáætlun á vegum stjórnvalda og allt gert til þess að styðja barnafólk. Hjón yrðu verðlaunuð fyrir að eiga barn númer 3 og 4, já og kannski 5, já og einnig fyrsta barn sitt og annað. Íslenskt þjóðfélag ætti að meta að verðleikum þá Íslendinga, sem eru frjósamir og auka þar með veldi okkar. Það er ekki nóg að fjölga bara peningunum á Íslandi, við verðum bókstaflega að fjölga okkur sjálf. Á fyrri helmingi 20. aldar eignuðust íslenskar konur oft yfir 10 börn(en hvaða feministi myndi eignast 10 börn)(he he)
Í nánustu framtíð eru 2 leiðir til að fjölga Íslendingum
Með innflytjendum sem verða nýbúar(ef ég hefði hatt, tæki ég hann ofan fyrir þeim)
eða með því að eignast sjálfir fleiri börn??????
7.10.2007 | 12:55
Karlingar í Borgarstjórn
Á forsíðu fréttablaðsins Sunnudag 7.okt-2007, telja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks að opinbert fyrirtæki á borð við Orkuveituna eigi ekki að standa í gróðastarfsemi á samkeppnismarkaði og þeir vilja að Orkuveitan dragi sig útúr Reykjavík Energy Invest. Á sínum tíma vildu þessir sömu menn selja Orkuveituna, sem nú er metin á himinháar upphæðir og hefur greitt góðann arð. Á morgun verður rædd tillaga um að(OR) selji hlut sinn í (REI)
Þetta er hugsunarlaus firra. Ranghugsun. vitnað í hagfræðikenningar eins og það sé verið að vitna í trúarbragðaskruddu. Ég spyr, á það alltaf við að fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar eigi ekki að standa í gróðastarfsemi á samkeppnismarkaði, er þetta algilt. Hvað með fyrirtæki, einsog Reykjavík Energy Invest, sem hyggja á útrás, með Bjarna Ármanns í fararbroddi, sem hefur lagt fram eigið fé. Halda þeir að þessi ungi maður sé fífl, er eitthvað flan á þessum manni, skoðið bara hvernig hann greiðir hárið, þetta er minnst 14 vindstiga greiðsla, svipað Ólafi Ragnari forseta, sem á dögunum fékk að sitja við hlið Kínaforseta, því hann var með langbestu hárgreiðsluna.
Eru íbúar Reykjavíkur hræddir við að taka þátt í útrás íslenskra fyrirtækja??? Væri ekki ágætt að græða svolítið og geta í framhaldinu greitt minna í skatta.
Hugsum aðeins útfyrir rammann og þið "KARLINGAR" í borgarstjórn, hugsið þetta nokkra daga í viðbót, leggist undir feld og veltið fyrir ykkur: Má fyrirtæki í eigu borgarbúa ekki græða péninga?
29.9.2007 | 03:02
Stríð eða Friður
Stríð og friður. Var það ekki Tolstoy sem samdi bók með þessu nafni og í tveim bindum??
Einsog Hollywoodmynd, en ég hef aldrei lesið hana, svona er bara fyrir rómantíkera.
Til grundvallar hugsun minni um stríð og frið í samfélaginu, legg ég til 4 grundvallareiningar:
Konur
Börn
Gamalt fólk
Karlmenn
Ef ekkert ógnar þessum grunneiningum samfélagsins, legg ég til frið
Ef eitthvað ógnar þeim, legg ég til stríð.
Annað til grundvallar, er að markmið þjóðfélagsins eigi að vera hin sömu og ríktu á dögum Neandertalsmanna. Homo Sapiens hafði tamið eldinn. Konur og Karlmenn löggðu til fæðu fyrir hópinn, til hagsbóta fyrir börnin og gamla fólkið. Eldurinn hélt villidýrunum frá, t.d rándýrum, sem leituðu að vetursetu í hellum. Konur og karlmenn elskuðu hvort annað. Gamla fólkið sagði sögur og hló að fíflalátum barnanna.
Það sem hefur breyst er að rándýrin, hræðast ekki lengur eldinn, því engin rándýr eru eftir, nema þau sem teljast til Homo Sapiens. Meðal kvennanna, barnanna, gamla fólksins og karlmannanna, við eldinn, dveljast rándýr sem eru af sömu tegund og hvernig eigum við að bregðast við þessari nýju hættu ????
Ég legg til Stríð, einsog Bob Marley sagði: Rise Up, Stand UP.
Það er enginn friður nema við losnum við þessa óværu...
Jesús sagði: Ég er ekki kominn til að boða frið, heldur sverð.
En hvað er sverð?????
Sverð hins góða stríðsmanns, er vopn sem þú beitir, til að verja samfélagið, karlmenn eru stríðsmenn, svo þetta á við að verja, konur, börn og gamalt fólk.(en í dag eru konur líka stríðsmenn, þær öfluðu líka fæðunnar áður fyrr, en karlmenn montuðu sig meira yfir veiðiferðum(he he)
Herútkall!!!!!!!!!!!
Verjum þau gildi sem gerir okkur að Homo Sapiens
Tryggjum velferð Karlmanna, Kvenna, Barna og Gamals Fólks
Látum ekki Blinda fjármálaspekúlanta leiða okkur í tvísýnu, með grundvallargildi okkar
Eða auglýsingar tortíma börnum okkar
Og köstum ekki gamla fólkinu á haugana, áður en það nær að segja sögu sína
Verjum hagsmuni okkar, við munum sigra, því þetta eru bara Pappírstígrisdýr, sem munu falla einsog spilaborg, þegar við beitum sverði okkar.
Fólk, þið eruð stríðsmenn, en ekki framleiðsluvélar
Rísið upp, í nafni, þess sem skapaði ykkur. Þegar þið hafið staðið á fætur og finnið mátt Neandertalsmannsins, sem lagði mammúta að velli, með spjótum, þá munuð þið eftir á, hlæja að ykkur sjálfum, hvað þið hræddust óvininn(he he)
29.9.2007 | 01:14
Maður sem Maskína
Frá því á 20 öld á dögum fyrri-heimstyrjaldar, þegar tugir þúsundra ungra manna var slátrað í stríði sem enginn skildi, nema lítill hópur manna, sem hagsmuna hafði að gæta, fór að bera á því að þeir sem stjórnuðu samfélaginu, litu á menn sem maskínur.
Nú, 2007, á dögum, frelsis og ótakmarkaðrar þróunar, hefur gildið maður=maskína, fest í sessi.
Allir eru söluvara, frelsið er að geta selt sig, en önnur gildi hafa engann mátt.
En............................................ inntak Biblíunnar eru 7 orð.
Elska skaltu Guð þinn og náunga þinn. Sem sagt elskaðu þann sem skapaði mannkynið og elskaðu mannkynið. Við erum mannkynið(Homo Sapiens) og við erum ekki framleiðsluvélar... og skapari okkar, er sá sem færir okkur stöðugann mátt, alltaf, án skilyrða, sem sagt "Elskar okkur alltaf, óháð hvernig við högum okkur)
en..............................hin hugmyndafræðin, gengur útá það, að þú sem framleiðslutæki, skilir til samfélagsins, hámarksframleiðslu, en ef þú gerir það ekki, þá refsar samfélagið þér, nema þú hafir nóga peninga til að verja þig.
Það sem ég tel að séu grunnstoðir samfélagsins, eru þær sömu og voru fyrir 10 þúsund árum.
Ákveðinn hluti samfélagsins, sér um að skaffa fæðu( karlmenn veiddu dýr, en konur söfnuðu jurtum), en um kvöldið, sátu menn við eldinn, sem fældi hættuleg rándýr frá, börnin voru hamingjusöm, konurnar töluðu, en gutu hornaugum, á flotta stríðsmennina, gamla fólkið naut þess að segja sögur og með því að horfa í eldinn, kveikti það í gömlum minningum og allt fólkið var ein heild(Samfélag)
4 línur sem segja meira en nokkur stjórnmálamaður........
þessar 4 línur, eru saga okkar og framtíð, en ef við fylgjum ekki þessum einföldu leiðbeiningum, þá munum við deyja í fávisku okkar, horfðu bara á blóm í haganum, og spurðu þig þeirrar spurningar, er þetta framleiðsluvél ???????????
nei, hvert einstakt blóm, vex og dafnar, lifir og deyr og það þóknast engum nema skapara sínum, sem er eins og lítið barn og tekur á móti því þegar það deyr..
en................... í þessu framleiðsluþjóðfélagi. Hver vill þig, þegar þú hættir að framleiða???? og þegar þú ert dauður, er þetta þá ekki bara spurning um að endurnýta líffæri þín????, en Sál þín og taktu eftir........hún skipti fjandans engu máli, meðan prestar Þjóðkirkjunnar mala, í takt við framleiðsluvélarnar(he he he he)
28.9.2007 | 16:53
Tveir jarðormar
Yfir gangstétt á miðju hausti
á degi rigningar og roks
skríður nafnlaus ánamaðkur
honum liggur við drukknun
en ég hjálpa honum yfir á grasið
þegar ég lít til framtíðarinnar
sé ég fyrir mér að hann mun
ferðast neðanjarðar í allann vetur
meðan ég veð áfram gegnum flösuna
sem þyrlast úr hári himinsins
Báðir stefnum við í átt til vorsins
En við förum bara tvær aðskildar leiðir
Ljóð | Breytt 7.2.2009 kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2007 | 01:06
Söngur Fangans
Svartþrösturinn
Sem sest á gluggasylluna
Utan við rimlana
Er eina ábendingin um
Að þú elskir mig
Handleggir þínir
Sem faðma mig í draumi
Gefa mér von um að
Einhverntíma muni ég verða frjáls
Þessir múrar
Sem fangelsisveggirnir eru
Munu senn hrynja
En í brjósti mínu býr ótti
Því ég á ekkert nema þig
Ljóð | Breytt 7.2.2009 kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)