Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Gamaldags póli-TÍK

Í grein í Fréttablaðinu í dag, á blaðsíðu 10 og 11, er grein eftir þá Magnús Árna Skúlason og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, sem ber yfirskriftina "Þurfum að halda í bjartsýnina" og er ég algjörlega sammála yfirskriftinni, en sú klausa sem ber yfirskriftina "Gamaldags pólitík" er eftirtektarverð :

 

"Í gegnum samskipti sín við embættismenn í Evrópu hafa þeir einnig fengið að vita að myndin af Íslandi sé ekki á þann veg sem við myndum vilja mála hana. "Okkar heimildir, bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum segja okkur að verið sé að tala um Marshall-aðstoð við Íslendinga," segir Magnús. "Það er svo bara sagt að það sé ekki hægt að ræða við íslensk stjórnvöld. Í vikunni var fundur í Brussel með Þórunni Sveinbjarnardóttur og góðum hópi embættismanna, sem okkur er sagt að hafi farið bara nokkuð skammlaust fram. Hins vegar var fundur í síðustu viku með Árna Mathiesen sem var víst bara skelfilegur," segir Magnús.

Hann bætir við að þeir Evrópubúar sem þeir hafi talað við skilji ekki kaldastríðspólitíkina sem stunduð sé á Íslandi með því að tilkynna lán frá Rússlandi, sem var þó ekki í hendi. "Evrópubúar eru mjög ósáttir við að Íslendingar ætli að rjúfa einingu Evrópu með þessum hætti og þykir þetta gamaldags pólitík."

 

Ég vil einnig að menn og konur hugleiði hvar í veröldinni annarsstaðar en hér sé Seðlabankastjórinn gamaldags pólitíkus, með gamaldags hugsunarhátt, sem tilheyrir löngu liðnum tíma, en hér fær hann að daga uppi eins og nátttröll, í einu mikilvægasta embætti þjóðarinnar og talar um "Óreiðumenn" og "Það lærði ég hjá Ömmu minni".  Það mætti halda að Seðlabankinn sé forngripasafn og helsti forngripurinn sé Forstöðumaður safnsins.

Ef einhver getur bent á þau þjóðríki þar sem þetta tíðkast, þá er það vel þegið.

Ríkisstjórnin virðist ekki geta komið sér saman um hver eigi að víkja !

Forsætisráðherra virðist eiga í mestum vandræðum, því enginn annar virðist geta rekið hann, nema hann sjálfur og ég skil það vel, því það er erfitt að skilja svo við sjálfan sig, að maður segi sjálfum sér upp !

 

 


Rekum burt allann illan anda úr landinu El spirito da revolution

Kannski þurfum við bara að fá Vúdu prest frá Hahítí (Ha ha hí hí tí), til að reka burtu illa anda frá landinu.  Þá illu anda sem sviku landann fyrir glópagull.  Í þessu youtubebroti birtist Screamin Jay Hawkins í öllu sínu veldi.  Ég mæli með einum frænda hans, sem er víst eins og Obama, ef konan væri farin frá honum, börnin sveltandi á ruslahaugi í Þriðja heiminum og tengdamóðir hans með eitthvað helvítis kvabb, svona svipað og Skógarbjörn sem vakinn er í hýði sínu, þar sem hann hefur sofið : sæll og glaður og áhyggjulaus.


Þetta hefst alltsaman í okkur sjálfum ! El spirito da revolution

Youtubebrotið er tileinkað öllum sem stóðu fyrir útifundinum í dag og þeim sem mættu og þeim sem hefðu mætt ef þeir hefðu getað !  Enga sektarkennd þið sem heima sátuð !  Þið mætið bara næst !

Við Íslendingar komum frá Noregi og norðanverðum Bretlandseyjum fyrir um 1100 árum, en löngu, löngu áður kom allt mannkynið frá Eþíópíu, samkvæmt nýjustu rannsóknum frá , Addis Ababa fyrir um 100.000 árum og þegar Bob Marley talar um Jah, skil ég það þannig að hann sé að tala um þann hlýja andblástur sem berst frá þeim rótum, svipað og móðir sem andar framan í barnið sitt (man einhver eftir því ?)  En nú erum við hér á þessari eyju sem við köllum Ísland og þetta er okkar heimili og hefur fóstrað okkur öll þessi ár, stundum svolítið hörð fóstra, en fóstra þó.  Hún hélt okkur allavega vakandi áður fyrr, en síðasta áratug höfum við verið svæfð og nú er Fjallkonan sem áður bar nafnið Álfadís komin fram á sjónarsviðið og heitir nú Grýla.  Hvað Grýla gerir veit enginn !  Á breytingaskeiði einsog núna, er aldrei að vita hvað umbreytt Álfadísin gerir.  Það mun tíminn leiða í ljós ! 

 

Ég sjálfur hata engann !  Hvorki á Íslandi né annarsstaðar !  En ég elska birtuna í öðrum og með því berst birta þeirra til mín og það fær mig til að brosa, herða upp hugann og halda áfram !  Annað væri bara einsog að vera á móti mengun og taka til þess ráðs að hætta að fíla súrefni !  Svo öndum léttar !  Þetta hefst alltsaman í okkur sjálfum !


Með einkaþotu upp í rassgatinu !

Þetta brunaútsölulið er búið að spila út !

Það er með hendurnar útúr buxnaskálmunum

og með einkaþotu uppí rassgatinu !

Ekkert er eftir í spilastokknum nema við !

En við erum jú ÁSARNIR !

Nú er bara að leggja ÁSANA á borðið !

Mætum öll á Austuvöll kl. 15 


Skríllinn kann líka að dansa Konga og baka omelettur

og að ala upp börn

og krefjast breytinga með bros á vör !

 

Dagur Sigurðarson orðaði það þannig :

 

"Hugsjón"

 

Friður
Ást
Líf

 

Að lifa saman
vinna saman
leika saman
saman
saman umframallt saman (Gl 88)

 

"Hugðarefni Dags var að berjast fyrir þeim heimi sem birtist í ljóðinu; heimi friðar og bræðralags, réttlætis og jafnréttis, þar sem sérhver maður fær tækifæri til að njóta alls þess sem lífið hefur að bjóða. Honum var ljóst að markmiðið var víðs fjarri og hindranirnar margar, en hann lét ekki deigan síga heldur blés til sóknar."(tekið orðrétt af heimasíðu Mattíasar Viðars Sæmundssonar).

Dagur Sigurðarson

 

 


Seðlabankastjórinn á eyju í Atlantshafi hefur lært flest af ömmu sinni !

"That I learned from my grandmother"

Þetta lærði ég af ÖMMU minni Whistling

Your grandmother what ???????

Amma þín hvað.....?

 

Man eftir frasa þegar ég var 10 ára  "Amma þín hvað ?"

Þegar okkur strákunum fannst eitthvað ekki nógu svalt !

þá sögðum við "Amma þín hvað ?" Vorum með þetta á heilanum í marga mánuði.

 

Ég er viss um að þetta er eina viðtalið við nokkurn Seðlabankastjóra EVER

sem segir "That I learned from my grandmother"

Er hægt að vera meira N A Í V  ?

Þetta er eitthvað svo ótrúlega lókal

ho ho ég veit það nú því AMMMMMMa sagði mér það þegar ég var lítill !

Þetta virkar mjög barnalegt og alls ekki traustvekjandi !

Mætti halda að hann væri ennþá í stuttbuxum

og Amma hans bíði eftir honum og leiði hann heim þegar viðtalið er búið ?

Hrokafullur, sjálfumglaður, lókal plebbi, með innistæðulausann Seðlabanka

talar um aðra sem óreiðumenn, með uppgerðarþjóðernissamúð,

en 300.000 breskir innistæðueigendur eru eflaust bara óreiðumenn að hafa lagt fé

sitt inn í slíka Óreiðubanka.

Óreiðumaður ársins er.............................................

 

 


Þjóðstjórn strax, fram að næstu kosningum El spirito da revolution

Burt með helvítis (afsakið ýtti á vitlausann takka

ætlaði að ýta á himnaríkistakkann, hélt að þetta

væri bankaauglýsing með biskupnum) pakkið !


I Scream, You Scream, We All Scream for Ice Cream

 

I Scream, You Scream, We All Scream

for Ice Cream

I Scream, You Scream, We All Scream

for Ice Cream

I Scream, You Scream, We All Scream

for Ice Cream


 

 

 

 


Hraðlestrarnámskeið fyrir farþega í hraðlest, sem þurfa á Hagfræðingi að halda !

Fór á hraðlestrarnámskeið á Laugardagskvöldið !  

Þar var hratt farið yfir sögu !

Nú get ég lesið miklu hraðar !

Las u.þ.b. 378 HAGFRÆÐIBÆKUR á Sunnudag, Mánudag og Þriðjudag.

Þau áttu ekki fleiri hagfræðibækur á HAGFRÆÐIBÓKASAFNINU !

Og ég fann lausnina !

Lausnin var að ...........

Láta kannski bara Lilju Mósesdóttur um þetta !

Því þó ég geti nú lesið hratt, þá gleymi ég jafnóðum því sem ég les, nema ég hafi sérstakann áhuga á viðfangsefninu !

Bara allt nema Milton Friedman !

Og Davíð sem Seðlabankastjóra !

Og Björn Bjarnason sem flónið í fílabeinsturninum !

Youtubebrotið er úr myndinni "Down By Law"

Leikstjóri : Jim Jarmusch

Leikarar : 

"Roberto Benigni" leikur Roberto

"John Lurie"leikur Jack

"Tom Waits" leikur Zack

 

 


Léttum hlassið á vagninum Burt með Icesave, Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og krónuna

Burt með Davíð strax í fyrramálið ! 

Konan hans hefði verið betri Seðlabankastjóri !

Konur til valda strax !  Þar á meðal konan hans Davíðs !

Talaðu við kallinn !

Hvurskonar þverhaus er þetta eiginlega ?

Lætur eins og smábarn, kominn langt á aldur !

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband